{"title":"Höfuðverkur, kvef og hálsbólga","description":null,"products":[{"product_id":"puressentiel-hostastillandi-halstoflur","title":"Puressentiel – Hóstastillandi hálstöflur","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003eErtu með þrálátan hósta sem truflar svefninn eða veldur óþægindum yfir daginn? Hvort sem um er að ræða þurran hósta eða slímhósta getur hann haft veruleg áhrif á daglegt líf og vellíðan.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel hálstöflurnar eru hannaðar til að draga úr hósta og róa ertingu í hálsi. \u003cbr\u003eÞægilegar að hafa meðferðis, hvort sem er í vinnunni, skólanum eða á ferðinni.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHálstöflurnar innihalda náttúruleg virk efni úr græðisúru, blóðbergi og C-vítamín. Samsetningin hjálpar til við að róa ertingu og kláða í hálsi sem fylgir þurrum hósta. Við slímhósta auðvelda þær uppgang slíms og hjálpa þannig til við að hreinsa öndunarveginn.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eAuk þess eru hálstöflurnar ætlaðar til að draga úr bólgu og óþægindum í hálsi, svo sem særindum, hæsi og þreytu í röddinni. Samkvæmt framleiðanda geta þær einnig hjálpað til við að fyrirbyggja sýkingar í efri öndunarvegi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43105958756432,"sku":null,"price":2800.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/Comprimes-toux-a-sucer-_-comprimes.webp?v=1793634458"},{"product_id":"puressentiel-hostasirop-fyrir-born-140-ml","title":"Puressentiel – Hóstasaft fyrir 1+ börn 140 ml","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel Respiratory er náttúrulegt hóstasaft sem er sérstaklega þróað til að draga úr þurrum hósta og slímhósta hjá börnum frá 1 árs aldri. Hóstasaftið inniheldur 100% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna sem hjálpa til við að róa ertingu í hálsi, vernda slímhúðina og draga úr óþægindum sem fylgja hósta.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHóstasaftið inniheldur meðal annars læknastokkrós og hunang sem hafa mýkjandi og róandi áhrif á hálsinn. Læknastokkrós hjálpar til við að viðhalda raka í slímhúðinni og vernda hana gegn ertingu, á meðan hunangið róar hálsinn og dregur úr óþægindum við hósta.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eAuk þess inniheldur hóstasaftið xantangúmmí og arabískt gúmmí úr akasíutré. Þessi efni mynda verndandi lag á slímhúð koksins og hjálpa þannig til við að draga úr ertingu af völdum utanaðkomandi áreitis.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHóstaaftið er með mildu jarðarberjabragði sem auðveldar börnum inntöku. Meðfylgjandi mælibikar tryggir að auðvelt sé að mæla réttan skammt eftir aldri barnsins.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43105993457744,"sku":null,"price":3450.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/b90f0e5d487368d38afe40e56992.webp?v=1793635180"},{"product_id":"puressentiel-nefudi-fyrir-born-0","title":"Puressentiel – Nefúði fyrir börn 0+","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel nefúði fyrir börn er mildur og náttúrulegur nefúði sem er sérstaklega þróaður til að hreinsa, raka og losa um stíflur í nefi. Úðinn hentar börnum allt frá fæðingu og er tilvalinn til daglegrar nefhreinsunar, sérstaklega þegar börn eru kvefuð eða finna fyrir óþægindum vegna nefstíflu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eNefúðinn inniheldur hreinan sjó frá Cancale í Bretagne í Frakklandi, sem er ríkur af steinefnum og snefilefnum, ásamt aloe vera sem hjálpar til við að viðhalda raka og róa viðkvæma slímhúð nefsins.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSjórinn hjálpar til við að losa um slím og auðvelda hreinsun nefsins, á meðan aloe vera dregur úr þurrki og ertingu. Samsetningin stuðlar að heilbrigðri slímhúð og hjálpar til við að halda nefgöngunum hreinum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eNefúðinn er með sérhönnuðum stút sem tryggir milda og jafna dreifingu lausnarinnar. Hægt er að nota flöskuna í hvaða stöðu sem er, þökk sé 360° úðakerfi. Stúturinn er einnig hannaður til að koma í veg fyrir að lausnin flæði aftur inn í flöskuna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43106007613520,"sku":null,"price":3550.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/spray_respi_bebe_smurf-copie.webp?v=1793635679"},{"product_id":"puressentiel-halsudi-15ml","title":"Puressentiel – Hálsúði 15ml","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel Respiratory er hálsúði með náttúrulegum innihaldsefnum sem hjálpar til við að róa ertingu og draga úr óþægindum í hálsi. Úðinn inniheldur blöndu af fjórum ilmkjarnaolíum ásamt hunangi, própólis og sólhatti sem styðja við vellíðan í hálsi og öndunarvegi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003ePiparmyntuolía hefur róandi áhrif á hálsinn, kokið og raddböndin, á meðan timjanolía er þekkt fyrir eiginleika sína sem styðja við eðlilega starfsemi öndunarfæra. Hunangið mýkir hálsinn og hjálpar til við að draga úr ertingu og sviða.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÚðinn inniheldur einnig própólis og sólhatt sem eru þekkt fyrir eiginleika sína sem styðja við ónæmiskerfið. Samsetningin er sérstaklega ætluð til að lina óþægindi í hálsi og auðvelda öndun, meðal annars þegar kvef og önnur óþægindi í öndunarvegi gera vart við sig.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43106056110160,"sku":null,"price":2890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/33065.webp?v=1793637097"},{"product_id":"puressentiel-nefudi-vid-nefstiflu-3","title":"Puressentiel – Nefúði við nefstíflu 3+ 15ml","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel Respiratory er nefúði sem hjálpar til við að losa um nefstíflu, draga úr nefrennsli og lina óþægindi sem fylgja kvefi og ofnæmi. Úðinn hreinsar nefgöngin, gefur slímhúð nefsins raka og auðveldar öndun.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eNefúðinn hentar meðal annars við kvefi, frjókornaofnæmi, nefslímubólgu og skútabólgu. Samsetningin er sérstaklega þróuð til að losa um stíflur í nefi án þess að þurrka eða erta viðkvæma slímhúð.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÚðinn inniheldur saltsterkari sjólausn ásamt lífrænt ræktuðum rósmarínblómavatni og ilmkjarnaolíum. Einnig inniheldur hann própólis og sólhattseyði. Þessi samsetning hjálpar til við að hreinsa nefgangana, losa um slím og viðhalda raka í slímhúðinni.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43106075115600,"sku":null,"price":2350.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/Resp-ok-nasal-spray-HA.webp?v=1793637492"},{"product_id":"respok-kvefpinni","title":"Resp'OK – Kvefpinni","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel Resp'OK er handhægt stifti sem inniheldur 19 ilmkjarnaolíur ásamt náttúrulegu mentóli og kamfóru. Samsetningin gefur frískandi og svalandi ilm sem hjálpar til við að skapa tilfinningu fyrir opnari öndunarvegi og aukinni vellíðan.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eIlmkjarnaolíurnar eru valdar vegna hreinsandi og róandi ilmeiginleika sinna. Náttúrulegt mentól og kamfóra gefa ferskan og svalandi ilm sem getur verið sérstaklega þægilegur þegar nefið er stíflað eða þörf er á frískandi tilfinningu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eInnöndunarstiftið er lítið og þægilegt í notkun og því auðvelt að hafa það með sér í vinnuna, ferðalagið eða hvert sem leiðin liggur.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43106086191184,"sku":null,"price":1550.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/Resp-ok-inhalor-HA.webp?v=1793637808"},{"product_id":"puressentiel-sinus-express-rollon-fyrir-kvef-of-kinnholubolgu","title":"Puressentiel Sinus Express – Rollon fyrir kvef og kinnholubólgu 5ml","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel Sinus Express er frískandi rollon sem hjálpar til við að draga úr tilfinningu um stíflaða kinnholur og veita aukin þægindi við öndun. Varan sameinar kælandi áhrif sex lífrænna ilmkjarnaolía og markvisst nudd með nuddkúlu sem hjálpar til við að lina óþægindi og spennu á svæðum í kringum nef, enni og kinnbein.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFormúlan inniheldur 99,7% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna, þar á meðal ilmkjarnaolíur úr eucalyptus, piparmyntu, lavender, niaouli og marjoram. Þær veita frískandi og kælandi tilfinningu sem getur hjálpað til við að draga úr óþægindum þegar skútar\/kinnholur eru stífluð.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eRoll-onið inniheldur einnig lífrænt aloe vera sem veitir húðinni raka og stuðlar að mýkt hennar. Létt áferðin smýgur hratt inn í húðina án þess að skilja eftir feita eða klístraða tilfinningu og hentar því einnig viðkvæmri húð og til notkunar yfir farða.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/h3\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43106680701008,"sku":null,"price":1950.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/PE_ROLLER_SINUS_2000x2000-2022.webp?v=1793658103"},{"product_id":"puressentiel-headache-rollon-vid-hofudverk-5ml","title":"Puressentiel Headache – Rollon við höfuðverk 5ml","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel Headache er frískandi rollon sem hjálpar til við að lina höfuðverk með því að sameina kælandi áhrif, nudd og níu hreinar ilmkjarnaolíur með slakandi og róandi eiginleika.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eVaran er sérstaklega hönnuð til að draga úr óþægindum sem fylgja höfuðverk. Nuddkúlan auðveldar að bera vöruna á ákveðna þrýstipunkta á gagnaugum, enni, hnakka og herðum. Kælandi tilfinningin ásamt mildum ilmi ilmkjarnaolíanna stuðlar að slökun og vellíðan.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eRollonið er handhægt og þægilegt í notkun og því auðvelt að hafa það með sér í vinnuna, skólann eða ferðalagið. Létt áferðin smýgur hratt inn í húðina án þess að skilja eftir feita tilfinningu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003ePuressentiel Headache hefur samkvæmt framleiðanda verið prófað með tilliti til virkni við höfuðverk.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Puressentiel","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43106695315536,"sku":null,"price":1950.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0257\/7724\/2192\/files\/PURESSENTIEL_BIEN_ETRE_Roller_maux_tete_CA_EN_2018_X-PRIME.webp?v=1793658380"}],"url":"https:\/\/vistvaena.is\/collections\/hofudverkur-kvef-og-halsbolga.oembed","provider":"Vistvæna búðin","version":"1.0","type":"link"}