
Kaffi&Sítrusblöndu andlitsskrúbburinn er sérstaklega blandaður fyrir þurra húð. Blandan inniheldur rósaberja-, sætappelsínu- og sítrónu verbena kjarnaolíur.
Appelsínuolía vinnur bæði sem sótthreinsandi og bólgueyðandi sem hentar vel til þess að róa roða og ertingu. Upplífgandi áhrif sítrónu verbena olíunnar tóna húðina með sterkum sótthreinsandi eiginleikum og getur þess vegna haft jákvæð áhrif gegn acne og bólum.
Hreinsar og skilur húðina eftir mýkri, sléttari og endurnærðri. Blönduð með sheasmjöri til þess að gefa húðinni raka eftir skrúbbun.
Skrúbburinn er umhverfisvænn úr úrvals Arabica kaffibaunakorgi sem annars hefði farið til spillis hjá metnaðarfullu kaffiiðnarfólki.
Náttúrulegt, handgerðir, sjálfbær framleiðsla, vegan og cruelty free.
Afhverju kaffiskrúbb?
- Kaffiskrúbbar eru stútfullir af andoxunarefnum og koffíni sem bæði hreinsar og eykur blóðflæði á því svæði sem borið er á.
- Hentar sérstaklega vel þeim sem berjast við exem, acne, bólur og slitför.
- Koffínn hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem hjálpa til við að berjast við bólgur og roða
Notkunarleiðbeiningar
- Hristið túpuna fyrir notkun.
- Nuddið skrúbbnum á rakt andlitið með hringlaga hreifingu.
- Leyfið skrúbbnum að vera á í nokkrar mínútur og skolið síðan af með vatni.
- Óhætt er að nota skrúbbinn nokkrum sinnum í viku.
Upplýsingar um umbúðir?
Skrúbburinn er í glerkrukki. Hver skrúbbur kemur í litlum pappakassa. Allar umbúðir eru 100% endurvinnanlegar.
Innihaldslýsing frá framleiðanda
Coffea Arabica Seed Powder, Sucrose, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Cocos Nucifera (Coconut) Fruit Oil, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil, Prunus Armeniaca (Apricot) Kernel Oil, Rosa Canina (Rosehip) Fruit Oil, Citrus Aurantium Dulcis (Orange) Peel Oil, Lavandula Angustifolia (Lavender) Flower Oil, Lippia Citriodora (Lemon Verbena) Leaf Oil, Eucalyptus Globulus (Eucalyptus) Leaf Oil, Citrus Limonum (Lemon) Peel Oil, Cedrus Atlantica (Cedarwood) Bark Oil, Boswellia Serrata (Frankincense) Oil, Benzyl Alcohol, Dehydroacetic Acid, Benzoic Acid, Sorbic Acid, *Limonene, *Linalool. *Natural constituent of essential oils listed.