
Lífrænu hundaskítspokarnir frá Maistic hafa verið verðlaunaðir fyrir gæði, áferð og notagildi enda eru þeir slitsterkir þrátt fyrir að vera algjörlega plastlausir.
Framleiðendur pokanna hafa tekið sjálfbærni á annað stig með því að innlima plöntuúrgang í framleiðsluna sem annars hefði verið meðhöndlað sem sorp til brennslu.
Pokarnir hafa verið vottaðir sem lífniðurbrjótanlegir (biodegradable) til moltunar og henta hvort heldur sem er í litlar einingar heima fyrir eða í stórar sorpstöðvar. Þar sem grunneining pokanna er plöntuúrgangur þá brotna þeir niður í lífræna næringu í stað þess að skaða eiginleika moltunnar.