
Lífniðurbrjótanlegir svampklútar, 100% plastlausir og framleiddir í Evrópu úr náttúrulega endurnýjanlegum auðlindum.
70% cellulose og 30% bómull. Vatnsbasað blek. 100% náttúruleg framleiðsla. Vottaðir samkvæmt Oeko-Tex stuðli 100. Varan er vegan.
Klútarnir skilja ekki eftir sig örplastmengun, ólíkt hefðbundnum svampklútum.
Svampklútarnir eru mjög rakadrægir, endingargóðir og margnota. Hægt að nota í moltu í lok líftíma.
Fjölbreyttir notkunarmöguleikar. Henta meðal annars á eldhús, baðherbergi eða hvar sem er.
Þvottaleiðbeiningar: Þola bæði þvotta- og uppþvottavélar við 30-60°C hita. Má ekki setja í þurrkara..
Stærð: 172 × 200 mm