Skip to content

Flower Power Premium AI2 vasableyja

4.990 kr

Viltu fá að vita þegar varan kemur aftur?

Premium All-in-two Vasableyja

Taubleyjurnar frá Noah Nappies eru hannaðar og framleiddar með væntumþykju í huga bæði gagnvart þeim litlu og móður jörð. AI2 (All in Two) bleyjan er vasableyja og er nútímaleg uppfærsla á þeim hefðbundnu AIO (All In One) bleyjunum frá Noah Nappies og kemur til móts við þær væntingar sem taubleyjufreldrar og dagforeldrar setja.

Bleyjan stækkar með barninu og passar frá 3kg upp í 18kg! Mikilvægt er þó að hafa í huga að börn eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg og ekki alltaf hægt að stóla á tölur.

Öll efnin sem Noah Nappies notar eru með vottun meðal annars frá Oeko-tex og GOTS.

Eiginleikar

Stay Dry Wicking Jersey efni: Efnið upp við húð barnsins er kallað wicking jersey og líkist efni íþróttafatnaðs og er þekkt fyrir að halda húðinni þurri og svalri einnig hentar wicking jersey betur fyrir börn með viðkvæma húð og ekki nóg með það þá er mjög einfalt að þrífa kúkin af þessu efni.

Góð lekavörn: Bleyjan er með teygju við maga barnsins sem kemur enn frekar í veg fyrir að piss leiti út fyrir bleyjuna. 

mjúkt og endurunnið PUL efni: Ytra efni taubleyjunnar kallast PUL efni og er allveg einstaklega mjúkt og sveigjanlegt efni og þar afleiðandi gerir það bleyjunni fyrirferðarminni og þæginlegri fyrir barnið

Innlegg: Með bleyjunni fylgir mjög þyrst 8 laga bambus innlegg sem einnig er fáanlegt stakt. Innleggið er með tveimur smellum og passar í flest allar taubleyjur.

Margnota bleyja á svo marga vegu: Þú getur notað bleyjuna á amk tvo vegu. Settu innleggið í vasann á bleyjunni og notaðu stay dry efnið uppvið húð barnsins. Þú getur einnig lagt innleggið ofan á bleyjuna. 

Þvottur & umhirða 

Þvottur: hentu kúknum í klósettið og geymdu bleyjuna í blautpoka eða einhverju álíka. Síðan mælum við með að byrja á köldu skoli síðan ráðleggjum við Langt  40°C - 60°C þvottaprógram

Þurrkun: Innleggin mega fara á fullan hita í þurrkarann en við ráðleggjum að taubleyjan sjálf sé hengd upp til þerris þó hún megi fara á kalt prógram í þurrkaranum.

Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni. Krem sem innihalda sink minnka rakadrægni bleyjunnar þar sem sink er vatnsfráhindrandi. 

Efni

Ytra lag: Endurunnið 100% Polyurethane (PUL)

Innra lag: 100% polyester, Award Wicking Jersey (AWJ)

Oeko-tex standard 100 certified and contain no harmful chemicals