Fullnýtum hvern einasta dropa!
Þessi "málmlykill" hentar fullkomlega til þess að kreista út hvern einasta dropa af þínum uppáhalds snyrtivörum og kemur þannig í veg fyrir óþarfa sóun.
Lyklinum er einfaldlega stungið neðst á kremtúbu (t.d. sólarvörn, skrúbb- eða tannkremstúbu) og svo er honum snúið.
Framleiddur úr málmblöndu. 100% endurvinnanlegur og plastlaus!