Skip to content

Teddy hug lítill blautpoki

1.990 kr

Viltu fá að vita þegar varan kemur aftur?

Noah Nappies blautpokarnir eru hannaðir og framleiddir með væntumþykju í huga bæði gagnvart yngstu kynslóðinni og jörðinni. Blautpokinn er með einu hólfi sem lokast með YKK rennilás. Raki og bleyta haldast því inni í pokanum. Pokinn er sniðugur sem skiptitaska, leikskólapoki undir blaut/skítug föt/bleyjur, sundpoki og lengi mætti áfram telja! 

Öll efni Noah Nappies hafa fullt hús af vottunum, meðal annars Oeko-tex og GOTS.

Eiginleikar

  • Einn hanki: Hægt er að opna hankann með smellu að framan og því hengja pokann á þann stað sem hentar þér. Til dæmis á vagninn, innkaupakerruna, í þvottahúsið, á skiptiborðið og fleira.
  • Bless vond lykt!: Pokinn er hannaður til þess að halda, geyma og koma í veg fyrir að lykt smitist úr innihaldi pokans í nokkrar klukkustundir.
  • Einstaklega mjúkt og endurunnið PUL efni: Ytra efni pokans kallast PUL efni og er mögulega eitt af því mýksta og sveigjanlegasta PUL efnum sem finnst á markaðnum í dag.

    Þvottaleiðbeiningar

    • Þvotta rútína: Opnaðu hólfið fyrir þvott. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við langt 40°-60° heitt þvottaprógram. Einfalt 40° þvottaprógram gæti reynst nóg, það fer allt eftir leyndardómsfulla innihaldi pokans! 💩
    • Þurrkari: Pokanum er ekki ætlað að fara í þurrkara nema á mesta lagi kalt prógram. Við mælum með því að pokinn sé hengdur upp eftir þvott.
    • Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni.

    Efni

    • Ytra efni: Vatnshelt endurunnið 100% Polyurethane (PUL).
    • Rennilás: Veglegur YKK rennilás fyrir styrk og góða endingu.