Fara að vörulýsingu

Birch tar sápustykki

Verð 1.200 kr
Verð nú 1.200 kr Verð 1.200 kr
Uppselt
VSK innifalinn
  • Til á lager
  • Áætlaður afhendingar tími Sep 05 - Sep 09
  • Frí póstsending ef verslað er fyrir 15.000kr

Brikitjara (e. birch tar) hefur lengi verið notuð í snyrtivörur og húðvörur vegna einstakra eiginleika sem hafa jákvæð áhrif á húðina. Hún er unnin úr börk birkitrjáa og er rík af náttúrulegum efnasamböndum eins og fenólum og guajakólum sem hafa bólgueyðandi og sótthreinsandi áhrif.

Kostir brikitjaru í sápum og húðvörum

Sótthreinsandi eiginleikar: Brikitjara hjálpar til við að hreinsa húðina og fjarlægja bakteríur og óhreinindi. Þetta gerir hana sérstaklega gagnlega fyrir húðvandamál eins og bólur, exem, rósroða og psoriasis

Bólgueyðandi áhrif: Hún róar húðina og dregur úr roða, kláða og bólgum. Þetta er sérstaklega gagnlegt fyrir þá sem þjást af exemi, rósroða, ofnæmi eða öðrum húðertingum.

Endurnýjun húðarinnar: Birkitjara getur hjálpað til við að örva húðflögnun sem gerir húðinni kleift að endurnýja sig hraðar og stuðlar að heilbrigðara yfirbragði.

Olíustjórnun: Hún er gagnleg fyrir feita húð þar sem hún getur hjálpað til við að jafna fituframleiðslu í húðinni án þess að þurrka hana of mikið.

Sveppadrepandi og bakteríudrepandi eiginleikar: Birkitjara er áhrifarík gegn sveppum og sýkingum sem gerir hana gagnlega fyrir þá sem þjást af húðsveppum eða sýkingum í húðfellingum.

Sár og húðertingar: Hún hefur verið notuð í aldir til að hjálpa við græðslu á litlum sárum, sprungnum húðsvæðum og öðrum húðskemmdum.

100gr

Innihaldsefni:

Sodium Cocoate, Sodium Shea Butterate, Sodium Olivate, Sodium Castorate, Betula Alba Wood Tar.