Fara að vörulýsingu

Creatine Electrolytes Duft Nordbo

Verð 4.990 kr
Verð nú 4.990 kr Verð 4.990 kr
Uppselt
  • Fá eintök eftir
  • Áætlaður afhendingar tími Aug 02 - Aug 06
  • Sendum frítt á næsta pósthús/póstbox ef verslað er fyrir 18.000kr

Creatine & Electrolytes frá Nordbo er hentug 2-í-1 lausn sem sameinar kreatín og steinefnasölt. Duftið inniheldur OptiCreatine™  sem er 100% kreatínmónóhýdrat með miklu aðgengi og stöðugleika. Kreatín stuðlar að aukinni líkamlegri frammistöðu við stuttar og ákafar æfingar. Dagsskammtur veitir 3–6 g af hreinu kreatíni. Blandan inniheldur einnig Le Guérandais, franskt sjávarsalt sem er náttúruleg uppspretta steinefnasalta, og sýruhlutlaust C-vítamín, sem stuðlar að eðlilegu orkuefnaskiptum og hjálpar til við að draga úr þreytu og örmögnun. Duftið hefur ferskt sítrónugrasbragð, leysist auðveldlega upp í vatni og er án sykurs og sætuefna.

Inniheldur 30-60 skammta

    Hvers vegna er Creatine Electrolytes einstakt?

    Nordbo Creatine & Electrolytes sameinar tvö mikilvæg atriði fyrir virkan lífsstíl í einni formúlu – kreatín og steinefnasölt. Á meðan kreatín styður við orkumyndun vöðva við stuttar og ákafar æfingar, gegna steinefnasölt mikilvægu hlutverki í eðlilegri vökvastjórnun, vöðvastarfsemi og taugaboðum. Saman mynda þau hagnýta 2-í-1 blöndu sem hentar bæði fyrir daglega notkun sem og í tengslum við æfingar.

    Formúlan inniheldur einnig sýruhlutlaust C-vítamín, sem stuðlar að eðlilegu orkuefnaskiptum og hjálpar til við að draga úr þreytu og örmögnun. Duftið leysist auðveldlega upp í vatni, hefur ferskt sítrónugrasbragð og er án sykurs og sætuefna.