Fara að vörulýsingu

Ecoegg þvottaegg

Verð 2.150 kr
Verð nú 2.150 kr Verð 2.150 kr
Uppselt
  • Til á lager
  • Áætlaður afhendingar tími Aug 25 - Aug 29
  • Sendum frítt á næsta afhendingarstað Póstsins eða Dropp ef verslað er fyrir 18.000kr

Þvottaeggið frá Ecoegg þvær föt án allra skaðlegra efna sem er bæði gott fyrir þau sem eru með viðkvæma húð og minnkar líka umfang eiturefna sem annars yrði skolað út í umhverfið. Með egginu fylgja steinefnakúlur fyrir 70 þvotta og síðan er hægt að kaupa áfyllingu og notað eggið aftur og aftur.

Við mælum með því að þvottavélin sé fyrst þrifin með detoxtöflunum frá Ecoegg til að skola burt leyfar af þvotta- og mýkingarefnum.
Síðan er stærri helmingur eggsins fylltur með báðum steinefnakúlunum, egginu lokað og því einfaldlega komið fyrir efst í þvottavélinni.

Steinefnakúlurnar vinna saman í vatninu, draga óhreinindi úr fötunum og mýkja þvottinn án nokkurra skaðlegra efna. Þær innihalda engin efni úr jarðolíu, ensímum, klór, fosfati, parabenum, SLS/SLES, pálmaolíu, örplasti og eru 100% vegan.

Þvottaeggið má nota við handþvott en þá er hann einfaldlega látinn liggja í þvottavatninu í 5-10 mínútur áður en handþvottur hefst.

Formúlan er mild og húðlæknaprófuð og hefur fengið einkunnina „framúrskarandi“ hjá Dermatest.

Við mælum sérstaklega með lyktarlausa þvottaegginu fyrir börn og þá sem eru með mjög viðkvæma húð, þvottaeggið án ilmefna hlotið stuðning Allergy UK síðan 2011.

Hentar fyrir þvott frá 15-60°.

 


  • 5 stars: 6 (100%)
  • 4 stars: 0 (0%)
  • 3 stars: 0 (0%)
  • 2 stars: 0 (0%)
  • 1 star: 0 (0%)
D
Dagbjort Sigurdardottir
Mæli með 👌🏻

Maðurinn minn er með mjög slæmt ofnæmi fyrir þvottaefni. Við tókum strax eftir breytingu. Mæli eindregið með fyrir exemispésa

G
Gudny Svavarsdottir
Frábær egg

Þetta reynist miklum mun betur en ég átti von á

U
Unnur Sveinsdóttir
Virkar bara ljómandi vel

Virkar bara ljómandi vel. Reyndar sama og engin lykt en það er líka allt í lagi :)

I
Ingunn Ingvadóttir
Ég er mjög ánægð með eggið og tauið kemur hreint

Ég er mjög ánægð með eggið og tauið kemur hreint og góð lykt af því

O
Olga Kristjánsdóttir
Ég er nýfarin að nota Ecoegg og er mjög hrifin af því

Ég er nýfarin að nota Ecoegg og er mjög hrifin af því, það er bara hrein snilld og mæli með að fólk prufi það takk fyrir

Sendum frítt ef verslað er fyrir 15.000 kr
Sendum um allt land
Hægt að sækja í Reykjavík og Akureyri