Fara að vörulýsingu

Eldhraun - Verkjaolía

Verð 3.490 kr
Verð nú 3.490 kr Verð 3.490 kr
Uppselt / Væntanlegt
VSK innifalinn
  • Fá eintök eftir
  • Áætlaður afhendingar tími Jun 10 - Jun 14
  • Frí póstsending ef verslað er fyrir 15.000kr

Verkjaolían Eldhraun er vinsælasta varan hjá okkur. Hún er verkjastillandi og bólgueyðandi og því frábær á alla verki í vöðvum og liðum. Hún örvar blóðrásina og reynist líka vel við bjúg á fótum, sinadætti, fótapirringi og mígreni.

Við fótapirringi og sinadrætti er gott að bera hana á fæturnar á kvöldin eða þegar óþægindin eru að byrja.

30 ml

Gott er að bera hana á hálsinn, bringuna og í andlitið kringum nefið við kvefi því hún er líka bakteríudrepandi.

Fyrir þá sem eru með mígreni þarf að bera hana á sig þegar mígrenið er að byrja á ennið, gagnaugun og aftan á hálsinn til að losna við höfuðverkinn.

Innihald: Jójóbaolía, íslensk sitkagreni ilmkjarnaolía

Varan er umhverfisvæn og ekki prófuð á dýrum. Hún inniheldur engin aukaefni eins og rotvarnarefni, paraben né sílikon. Náttúrulegur ilmur er í vörunni og hún er einnig vegan