Puressentiel – Hóstasaft fyrir 1+ börn 140 ml
- Áætlaður afhendingar tími Nov 04 - Nov 08
-
Sendum frítt á næsta afhendingarstað Póstsins eða Dropp ef verslað er fyrir 18.000kr
Puressentiel Respiratory er náttúrulegt hóstasaft sem er sérstaklega þróað til að draga úr þurrum hósta og slímhósta hjá börnum frá 1 árs aldri. Hóstasaftið inniheldur 100% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna sem hjálpa til við að róa ertingu í hálsi, vernda slímhúðina og draga úr óþægindum sem fylgja hósta.
Hóstasaftið inniheldur meðal annars læknastokkrós og hunang sem hafa mýkjandi og róandi áhrif á hálsinn. Læknastokkrós hjálpar til við að viðhalda raka í slímhúðinni og vernda hana gegn ertingu, á meðan hunangið róar hálsinn og dregur úr óþægindum við hósta.
Auk þess inniheldur hóstasaftið xantangúmmí og arabískt gúmmí úr akasíutré. Þessi efni mynda verndandi lag á slímhúð koksins og hjálpa þannig til við að draga úr ertingu af völdum utanaðkomandi áreitis.
Hóstaaftið er með mildu jarðarberjabragði sem auðveldar börnum inntöku. Meðfylgjandi mælibikar tryggir að auðvelt sé að mæla réttan skammt eftir aldri barnsins.
Eiginleikar og kostir