Fara að vörulýsingu

ShareOriginal®7er mini

Verð 4.200 kr
Verð nú 4.200 kr Verð 4.200 kr
Uppselt
  • Fá eintök eftir
  • Áætlaður afhendingar tími Jun 07 - Jun 11
  • Sendum frítt á næsta pósthús/póstbox ef verslað er fyrir 15.000kr

Share Original er einstök og náttúruleg vara sem byggir á aldagamalli hefð úr asískri læknisfræði. Hún er unnin úr japanskri apríkósu (Prunus mume), sem er handtínd og síðan látin gerjast í allt að 30 mánuði í viðartunnum. Þetta langa gerjunarferli eykur náttúrulega virkni ávaxtarins og skapar ríka blöndu af probiotic bakteríum, ensímum og næringarefnum sem styðja við jafnvægi í líkamanum.

Gerjun hefur verið notuð í þúsundir ára til að varðveita mat og bæta meltingu. Í tilfelli Share Original verður til öflug vara sem getur haft jákvæð áhrif á meltingarveginn og almenna líðan. Margir finna fyrir breytingu strax eftir fyrstu inntöku, svo sem létti í maga og bættri meltingu, á meðan aðrir upplifa áhrifin smám saman yfir nokkra daga.

Ávöxturinn styður við reglulega og eðlilega meltingu og getur hjálpað líkamanum að losa sig við uppsöfnuð eiturefni, virkar einnig vel á hægðatregðu. Gerla- og ensímainnihald hans hjálpar til við að endurbyggja og styrkja þarmaflóruna, sem er lykilatriði fyrir góða heilsu. Í hefðbundinni kínverskri læknisfræði (TCM) er mælt með reglulegri notkun til að viðhalda jafnvægi í líkamanum og styðja við daglega vellíðan.

Framleiðslan er vönduð frá upphafi til enda. Apríkósurnar eru handtíndar af bændum og eftir gerjun eru þær veltar upp úr náttúrulegri jurtablöndu sem inniheldur meðal annars gulrótasafa, rauðbeður, aloe vera og trönuber. Niðurstaðan er djúpt nærandi og kraftmikil vara sem sameinar hefð, náttúru og nútímalega heilsuhugsun.

Share Original er 100% náttúruleg, vegan og kemur í sjálfbærum umbúðum. Hún hentar þeim sem vilja styðja við meltingu, hreinsa líkamann á mildan hátt og bæta daglega heilsu án óþarfa aukaefna.

Mælt er með að byrja á hálfri til einni apríkósu á dag og aðlaga skammtinn að þörfum líkamans. Mikilvægt er að hlusta á líkamann og gefa honum tíma til að aðlagast.

Share Original mini inniheldur 7 stk


Sendum frítt ef verslað er fyrir 15.000 kr
Sendum um allt land
Hægt að sækja í Reykjavík og Akureyri