Stafafura ilmkjarnaolía
- Áætlaður afhendingar tími Jun 07 - Jun 11
-
Frí póstsending ef verslað er fyrir 15.000kr
Stafafuru ilmkjarnaolía er bakteríu og sveppadrepandi. Hún er góð við kvefi og einnig bólgum í vöðvum og því frábær olía í nudd. Hana er gott að bera á magann við magapest og harðlífi bæði hjá fullorðnum og börnum. Hún er mild fyrir húðina og hefur sefandi áhrif á hugann.
Góð olía til að nota í ilm lampa gegn kvefi. Líka er hægt að setja heitt vatn í fat og 2-3 dropa af olíunni í, setja síðan handklæði yfir höfuðið og halda höfðinu yfir fatinu til að anda henni vel að sér í nokkrar mínútur. Einnig er gott að blanda hana saman við burðaolíu og bera á bringu og háls.
Notist ekki óblönduð á húð.
Blöndun á Húð: Í 30ml af burðarolíu eru blandað sirka 10 dropum af ilmkjarnaolíu en það er hæfilega strerk blanda. Burðarolía fer eftir smekk hvers og eins en hún getur verið jójóbaolía, ólífuolía, sesamolía, kókosolía, möndluolía eða sólblómaolía. Mikilvægt er að velja hreina kaldpressaða olíu og helst lífrænt vottaða.
5 ml