Svitalyktaeyðir Delicate - Tangerine
- Áætlaður afhendingar tími Aug 09 - Aug 13
-
Frí póstsending ef verslað er fyrir 15.000kr
Mildur svitalyktaeyðir með léttum ilm sem hentar fyrir viðkvæma húð
Tangerine kremdeóið frá Four Starlings er mild og náttúruleg leið til að halda ferskum handakrikum allan daginn og sérstaklega fyrir þá sem eru með viðkvæma húð. Ilmurinn er léttur og sítruskenndur, en formúlan er laus við matarsóda og hentar því einstaklega vel þeim sem ertast auðveldlega.
Þessi náttúrulegi svitalyktaeyðir vinnur með líkamanum þannig að hann stíflar ekki svitaholur heldur kemur einfaldlega í veg fyrir svitalykt. Áferðin er mjúk og auðvelt að bera á húðina, en það besta? Þessi lítil krukka endist í allt að fjóra mánuði!
Þeir sem elska ferskan svitalyktaeyðir með sætum ilm án óþarfa innihaldsefna munu falla fyrir þessari sítrusbombu.
60 ml