Fara að vörulýsingu

The No Bar - Próteinstykki - Strawberry

Verð 495 kr
Verð nú 495 kr Verð 495 kr
Uppselt
  • Til á lager
  • Áætlaður afhendingar tími Aug 12 - Aug 16
  • Sendum frítt á næsta pósthús/póstbox ef verslað er fyrir 18.000kr

Hágæða próteinstykki úr alvöru hráefnum, enginn óþarfi

No Bar er hreint og vandað próteinstykki framleitt í Svíþjóð úr einföldum og auðþekkjanlegum hráefnum, án alls óþarfa. Engin gervisætuefni. Engin fylliefni. Engin sykuralkóhól. Engar ofunnar próteinblöndur. Með sætsúru jarðarberja bragði á rjómalöguðum kasjúhnetu-kókosbotni.

Eingöngu 6 hrein innihaldsefni sem þú þekkir og 11g af próteini í hverjum 45g bar. Heiðarleiki bragðast vel. 

Hvers vegna er próteinstykkið frá The No Bar einstakt?

Flest próteinstykki líta út fyrir að vera holl. En þau eru það ekki alltaf. Mörg þeirra byggja á próteineinangrunum, sírópum, fylliefnum, ýruefnum, sykuralkóhólum og gervisætuefnum. Þau geta vissulega innihaldið mikið prótein, en valda oft uppþembu, orkufalli og óþægindum í meltingu.

The No Bar fer aðra leið.

Það er gert úr hreinum hráefnum sem líkaminn þekkir, meltir auðveldlega og nýtir vel, án alls óþarfa álags. Í stað flókinna og mikið unnina hráefna er áherslan á einfaldleika, hreinleika og gagnsæi:

Hrein og alvöru hráefni
Auðmeltanlegir próteingjafar
Náttúrulega sætt með döðlum
Engin gervisætuefni eða sykuralkóhól
Engin fylliefni, gúmmíefni eða óþarfa aukaefni
Fólk velur No Bar vegna þess að það veitir jafna og stöðuga orku, fer betur í maga en flest önnur próteinstykki og hentar sem einföld næring í dagsins önn. Útkoman er próteinstykki með ljúffengu bragði sem líkaminn elskar og þú getur borðað án samviskubits.